156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:44]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa furðað sig hér á þátttöku í þessum mikilvæga fundi á þessum sunnudegi, ekki síst í ljósi orða fjölmargra hv. þingmanna og jafnvel hæstv. ráðherra sem telja þetta til marks um vinnusemi og mikilvæga vinnu sem við þurfum að standa í hér í þinginu. Ja, það virðist þó vera þannig að stjórnarandstaðan eigi að bera þá vinnu uppi. Við gerum enga athugasemd við það að bera uppi þingstörfin en veltum því þó fyrir okkur, og ég segi það hér enn og aftur, hvort tíma okkar hér í þinginu gæti ekki verið betur varið í aðra vinnu.