156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:45]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég held að sú ákvörðun forseta að boða til þessa fundar hafi ekki verið mjög skynsamleg af augljósum ástæðum eins og þessi dagur er búinn að sýna og ég skil ekki alveg hvernig sú ákvörðun var tekin því ekki var hún tekin eftir samráð við þingflokksformenn. Mig langar bara að biðla til hæstv. forseta að taka ábyrgð á þeirri stöðu sem hér er í þinginu því að það er ríkisstjórnin sem fer með völd í þessu landi og það er hún sem ber ábyrgð á því hvernig hægt er að semja um þinglok. Þessi staða sem upp er komin snýst ekki eingöngu um bókun 35. Það er ekki eins og það sé eina málið hér þar sem einhvern veginn allt er í loft upp. Það er bara ákveðið skipulagsleysi, stjórnleysi, sem kallar á það að forseti, þingflokksformenn og formenn flokka á Alþingi setjist niður og finni út úr framhaldinu.