156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:46]
Horfa

Snorri Másson (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með fyrri ræðumanni, hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, um að það sé sannarlega ekki bara margumrædd bókun 35 sem sé að valda þessum vandræðum hér við þinglok, síst af öllu, heldur eru það einmitt stór grundvallarmál á öðrum sviðum sem virðast í grundvallaratriðum vefjast fyrir ríkisstjórninni, að finna út hvernig megi klára þau, hvernig megi ákveða hvaða mál eigi að klára. Það er eitthvað sem heitir pólitísk forgangsröðun sem er augljóslega nauðsynleg á þessu stigi sem maður sér bara ekki glitta í. Í stað þess sér maður glitta í það sem sumir hafa lýst sem valdníðslu, að brjóta ákveðnar hefðir þingsins til að senda skilaboð, um hvað? Eigið algjört stjórnleysi á aðstæðum.

Þegar við ræðum bókun 35 þá hefur þetta náttúrlega ekki haft önnur áhrif en þau að varpa ljósi á hve mikilvægt mál það er. (Forseti hringir.) Hér hefur komið fólk á þingpalla, maður heyrir mikla umræðu í samfélaginu og það er mikill áhugi á þessu máli. Auðvitað fagnar maður því og heldur áfram að ræða það eins og maður fær tækifæri til. (Forseti hringir.) En hitt er dýpri vandi og hann er að ríkisstjórnin hefur misst stjórn á þessum þinglokum.