156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:48]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég hélt nú að í þetta skiptið myndi forseti svara einhverjum af þeim spurningum sem til hennar hefur verið beint þannig að ég spyr forseta enn eina ferðina og vonast til að fá einhver svör núna: Hver er staðgengill hæstv. utanríkisráðherra? Hver er staðgengill velferðarráðherra? Eru fleiri staðgenglar að störfum fyrir aðra ráðherra? Ég spyr að þessu því að eins og aðrir hafa bent á erum við hér á neyðarfundi og það er enginn ráðherra í salnum. Þegar við bentum á að það væru engir hv. þingmenn úr stjórnarmeirihlutanum í salnum poppuðu þeir inn og þeir eru þrír núna. Það var enginn hérna rétt áðan sem er allt í lagi nema það er mjög undarlegt í ljósi þess að hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans komu hér í röðum áðan til að benda á að það væri svo eðlilegt að vinna á sunnudegi. Það var enginn að tala um það. Við erum bara að tala um að það er ekki eðlilegt að hér sé þingfundur þegar það er ekki neyðarástand.