156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:49]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Eins og hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir benti á hefur því ekki enn verið svarað hver gegnir fyrir hæstv. utanríkisráðherra. Það er mikilvægt að það sé upplýst vegna þess að þetta er jú hennar mál sem ríkisstjórnin er að láta steyta hér á. Þetta er málið sem var rifið út úr nefnd fyrir tveimur mánuðum og hent inn í þingið á ábyrgð meiri hlutans. — Er forseti ekki að hlusta? Nei, forseti er ekki að hlusta. (Forseti (KÁB): Forseti er að hlusta.) Völdum fylgir ábyrgð og það er stjórnarmeirihlutinn sem hefur hér dagskrárvaldið og setur dagskrána og það er alveg ótrúlegt að það sé bókun 35 sem er á dagskrá dag eftir dag eftir dag og síðan er hæstv. ríkisstjórn, meiri hlutinn, að kenna minni hlutanum um, að minni hlutinn sé að stoppa einhver mál. (Forseti hringir.) Ríkisstjórnin hefur dagskrárvaldið. Forseti hefur dagskrárvaldið.