156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:50]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með þeim sem hér hafa brýnt forseta til þess að taka ákvörðun í þessu máli, alla vega gefa svör og hér hefur verið spurt um margt. Forseti ætti í raun, vil ég leyfa mér að segja, að boða til fundar með þingflokksformönnum, boða til fundar með formönnum flokkanna og að við setjumst nú niður af einhverri skynsemi og horfum raunsætt á það mál sem hér er uppi. Við erum ekki að fara að semja um að hér verði góðar umræður í dag. Það er algerlega ljóst. Þannig að ég skora á forseta að ganga í þetta verk. Ef forseti horfir bara yfir salinn er frísklegasta fólkið hér inni Miðflokksfólkið. Það er alveg gírað í áframhaldið.

Frú forseti. Ég skora á þig að kalla þennan hóp saman og við semjum um framhaldið.