Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Hér er verið að brjóta blað í sögunni. Hér hefur hæstv. forseti þingsins ákveðið að boða til fundar á sunnudegi til að ræða bókun 35, mál sem var vitað að myndi taka langa umræðu, sem forsætisráðherra sjálf staðfesti í viðtölum að myndi vera löng umræða um en engu að síður er tekin ákvörðun um að henda því hér í þingsal viku fyrir áætluð þinglok. Þinginu átti jú að ljúka, að mig minnir, 13. júní og í dag er 15. júní. Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní, er á þriðjudaginn og þá velti ég fyrir mér: Er þessari ríkisstjórn ekkert heilagt, ekki neitt, ekki sunnudagar, ekki 17. júní, ekki neitt?
Ég vil bara ítreka það að völdum fylgir ábyrgð. Það verður aldrei nógu oft ítrekað. Ég ætla ekki að nota orð sem mér hefur oft komið í hug síðustu klukkutímana. Það hefur verið sagt hér í þessum stól en ég ætla ekki að nota það orð. Það er stórt orð. En einstaklingum ferst misvel úr hendi að fara með vald, það er augljóst mál. Ég ætla bara að leyfa mér að segja það héðan úr þessum stól að ef menn ætla menn halda það, ef menn ætla að halda því fram að það að hafa þetta mál hér sýknt og heilagt á dagskrá — heldur frú forseti virkilega að það liðki fyrir þinglokum? Hefur enginn farið á samningatækninámskeið í þingmeirihlutanum? Kunna menn ekki að semja? Það er ekki gert héðan úr þessum stól. Þegar menn semja þurfa allir að gefa eftir. Þannig virka samningar.
Ég velti líka fyrir mér hvers vegna það er þessi mikli asi. Hvers vegna þessi mikli asi við að koma þessari nýju innleiðingu á bókun 35 í gegnum þingið? Hvers vegna þessi asi? Og þá verður mér hugsað til þjóðhátíðardagsins sem er 17. júní. Er asinn svona mikill af því að þingmeirihlutinn vill afsala Íslandi völdum til Brussel-báknsins fyrir þjóðhátíðardaginn, fyrir fæðingardag Jóns Sigurðssonar sem barðist fyrir sjálfstæði Íslendinga? Er það málið? Þetta er sorglegt. Það er sorglegt og í raun og veru bara ömurlegt að bókun 35 sé orðin eitt helsta forgangsmál þessarar ríkisstjórnar, og ég vil segja bara ríkisstjórnar Flokks fólksins. Fjölmargir þar innanborðs voru á móti þessari áætluðu innleiðingu á bókun 35 áður en þeir tóku sæti í ríkisstjórn þannig að greinilega eru einhverjir æstir í að fá ráðherrastóla og láta fyrir vikið eftir andstöðu við þessa áætluðu innleiðingu á bókun 35. Það er ömurlegt til þess að hugsa og ég segi það héðan úr þessum stól að aldrei myndi ég stíga svona drastískt til baka, aldrei. Stjórnarskráin er undir. Það hafa verið hér meiningar um að mögulega sé þessi áætlaða innleiðing á bókun 35 stjórnarskrárbrot. Eigum við ekki bara að leyfa stjórnarskránni að njóta vafans? Og ef það þarf að breyta stjórnarskrá til að þetta áætlaða frumvarp gangi hér í gegn, á þá ekki bara að byrja á réttum enda og breyta stjórnarskránni fyrst? Það tekur tíma. Er einhver í þessum sal eða sem er að hlusta sem finnst það bara eðlilegt þegar svona miklar vangaveltur eru uppi, hvort þetta brjóti stjórnarskrá eða ekki? Ég átta mig fullkomlega á því að menn eru ekki sammála um það, en á stjórnarskráin ekki að njóta vafans? Þarf ekki að kryfja það til mergjar áður en lengra er haldið, áður en valdframsalið fer fram til Brussel? Er það málið að þetta eigi sér stað fyrir þjóðhátíðardaginn, 17. júní? Þetta er með ólíkindum. — Ég bið hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.