Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Hér kom fram í máli þínu áðan að þú hefðir ekki svör á reiðum höndum varðandi hinar ýmsu spurningar stjórnarminnihlutans.
Frú forseti. Meiri hlutinn er greinilega ekki í nokkrum tengslum við almenning, ekki nokkrum. Frú forseti. Nú er það þannig að ungt fólk hefur spurt forseta hvort hann ætli að biðjast afsökunar á orðum sínum sem hann lét falla hér í ræðustól um ungt fólk sem vildi fá að koma fyrir allsherjar- og menntamálanefnd. Þar sem sá forseti sem situr í stóli forseta nú er sá sem um ræðir þá ættu svör að vera á reiðum höndum því þetta er einstaklingurinn sem spurningum unga fólksins er beint til. Það er því ekkert annað en eðlilegt, fyrst að forseti svarar ekki þessu fólki, (Forseti hringir.) að spurningunni sé beint til forseta. Ég hvet hæstv. forseta til að svara þessu unga fólki þannig að lýðræðið bíði ekki hnekki. (Forseti hringir.) Við erum hér með ungt fólk sem vill taka þátt í stjórnmálum, það er útilokað, það er hunsað (Forseti hringir.) og því hvet ég forseta til að svara því forseti hefur svör á reiðum höndum og getur svarað hér eftir að ég er búinn að tala.
(Forseti (KÁB): Forseti vill nefna það við hv. þingmann að hann getur ekki beint spurningu til forseta á meðan forseti situr hér í stólnum og heldur ekki til þingmanna sem ekki eru hér í salnum. Þetta á þingmaðurinn að vita.)