156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:00]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hér ríkir neyðarástand, það er greinilegt. Haldinn er neyðarfundur hér vegna utanríkismáls sem virðist vera stærsta krísa sem við höfum staðið frammi fyrir í utanríkismálum frá upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar, alla vega ef litið er til áhrifa þessara mála á dagskrá Alþingis. Þetta er því mjög alvarleg staða sem kallar á viðveru ráðherra málaflokksins, hæstv. utanríkisráðherra. Ég fer því formlega fram á það, frú forseti, að hæstv. utanríkisráðherra mæti til þessarar umræðu. Sé hæstv. ráðherra ekki ínáanlegur fer ég fram á að sá hæstv. ráðherra sem gegnir, eins og kallað er, fyrir hæstv. utanríkisráðherra, fer með embættisskyldur hans, mæti til þessarar umræðu, þessa neyðarástands sem ríkisstjórnin hefur lýst yfir með boðun þessa fundar.