Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Það hefur nokkuð verið rætt um þetta yfirlæti sem einkennir meiri hlutann í þingstörfum og það er því ekkert óeðlilegt að mínu mati þó að hv. þm. Jón Pétur Zimsen beini hér spurningu til forseta sem þingmanns, það er einmitt ein birtingarmynd yfirlætisins sem birtist í orðum hennar um umsagnaraðila í mikilvægu máli í þinginu. En þessi fundur, virðulegur forseti, þessi neyðarfundur, snýst ekki um bókun 35. Hann snýst um grundvallaratriði í störfum þingsins, í störfum nefnda og störfum hér í þinginu. Reynsluleysi ríkisstjórnarinnar — málefnaleg viðleitni til samningsvinnu við þinglok er hrópandi lítil. Hér koma þingmenn meiri hlutans og tala með yfirlæti til okkar í minni hlutanum, tala um að það séu bara átta þingmenn sem þurfi að kippa úr sambandi hjá Miðflokknum til að umræðan geti haldið áfram. Hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar (Forseti hringir.) talar um okkur sem einhverja hefðarketti og dómsmálaráðherra átti sín orð sem má túlka sem ákveðið yfirlæti hér rétt áðan. (Forseti hringir.) Hvernig býst virðulegur forseti við að við bregðumst við?
(Forseti (KÁB): Ræðutíminn er búinn.)
Hvaða rök eigum við önnur en að koma hér (Forseti hringir.) og vekja athygli á þessu og beita þeim verkfærum sem við höfum? Ekki getum við legið flöt fyrir svona vinnubrögðum.