Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Eins og liggur ljóst fyrir brennur bókun 35 mjög á þingmönnum Miðflokksins. En það er líka rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins að þetta mál er nú orðið miklu stærra en bara að við fáum hér að ræða áfram bókun 35, þar sem við eigum margt enn þá ósagt. Þetta snýst m.a. um það að á Íslandi er þingræði. Það vill nú bara þannig til og ef frú forseti er ekki meðvituð um það, þá hefur svo verið um alllangt skeið. Tilraunir til valdníðslu eru ekki gott upplegg í það samtal sem þarf óneitanlega alltaf að fara fram fyrir rest, sem er samningur milli minni og meiri hluta í gegnum þingflokksformenn og formenn flokka. Þannig endar þetta fyrir rest nema hér standi bara til að reiða upp sveðjuna og höggva á kaðalinn.