Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka forseta fyrir að hafa komið skilaboðum til staðgengils hæstv. utanríkisráðherra en mig langaði þá að spyrja: Hver er staðgengillinn? Er nokkur leynd yfir því? Einnig er ég með spurningar sem ég hef ekki fengið svör við og hæstv. forseti sem sat í stólnum rétt áðan sagðist ekki hafa upplýsingarnar. Ég veit ekki hvort það standi til að leita þeirra upplýsinga en spurningarnar voru: Hver er staðgengill velferðarráðherra? Eru fleiri staðgenglar ráðherra að störfum? Ég spurði einnig í ljósi þess að hér er verið að brjóta blað í sögunni og halda fund á sunnudegi, neyðarfund, þegar það er engin neyð í landinu: Kemur til greina, ég er búin að spyrja að þessu nokkrum sinnum, að brjóta annað blað og halda hér þingfund á 17. júní, um bókun 35, veiðigjöld eða einhver önnur mál? Það eru mörg mál sem þarf að ræða. Kemur það til greina, hæstv. forseti?
(Forseti (ÞSv): Því er auðsvarað. Það stendur ekki til að halda þingfund á 17. júní. Eftir því sem forseti best veit er hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra staðgengill hæstv. utanríkisráðherra en forseta er ekki kunnugt um hver er staðgengill hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra.)