Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir að koma skilaboðum til staðgengils hæstv. utanríkisráðherra sem þá, eftir því sem mér heyrist og næst verður komist, er hæstv. fjármálaráðherra og vænti þess að hæstv. forseti upplýsi okkur um það þegar svar berst frá hæstv. ráðherra. Nú vona ég að hann hafi lært af reynslunni því að ekki alls fyrir löngu var komið skilaboðum til hæstv. fjármálaráðherra, sem var þá staddur í einni af byggingum Alþingis, um þann fund sem þá stóð yfir, en hæstv. ráðherra mun hafa brugðist við því með því að gera grín að beiðninni og ekki séð ástæðu til að heiðra Alþingi með nærveru sinni í sal. Ég vona að sú verði ekki raunin nú.