156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:12]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég vil bara ítreka og taka undir orð hv. þm. Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur sem kom hér upp áðan, að ábyrgðin er auðvitað í höndum forseta, þingflokksformanna og formanna flokkanna. Sú umræða sem verður að eiga sér stað um þinglokin er auðvitað á ábyrgð þessa fólks, forystumanna ríkisstjórnarinnar, að leiða það í jörð hvernig þinglok gætu litið út, hvaða mál hvoru tveggja fylkingar sætta sig við að klára hér á viðunandi hátt og viðeigandi tíma innan þeirra tímamarka sem menn ætla sér í að klára þetta þing. Það er auðvitað á ábyrgð ríkisstjórnarinnar að gera slíkt. Vinnubrögðin hingað til hafa ekki verið trúverðug hvað þetta varðar.