Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Á þeim 12 árum sem ég hef verið hér við þingstörf hefur ýmislegt komið upp á og oft verið stór mál við þinglokin sem hafa verið mikið í umræðunni eða mismikið í umræðunni en sem hafa haft vissa tímapressu til að klárast og hefur verið samið um þau. Oft hefur umræðan verið mikil undir þinglok, sérstaklega þegar þinglokasamningar eru í gangi. Oft hefur maður hugsað af hverju forseti grípi ekki til ýmissa ráða, hafi lengri þingfundi og láti sverfa meira til stáls. Ég skal viðurkenna það, ég hef oft ekki skilið það. En alltaf hefur það tekist, oftast fyrir 17. júní, að klára slíka samninga og ljúka þeim málum og öðrum er frestað. Mér sýnist staðan vera sú hér að það er engin lausn í sjónmáli, ég sé engin mál sem þurfa að klárast strax, þannig að ég held að við ættum bara að vísa sem flestum málum til næsta þings. Það eru kannski örfá mál sem þyrftu að klárast núna, annars verður bara að vísa þeim til næsta þings.