156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:15]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Það er rétt að forseti upplýsi hv. þingmenn um það, hafi þeir ekki verið að fylgjast með fundahöldum hér bæði í dag og í gær og reyndar í síðustu viku, að haldnir hafa verið allnokkrir fundir þingflokksformanna þingflokkanna hér inni á Alþingi og verið mörg samtöl fyrir utan þá fundi. Hér hefur ítrekað þurft að gera fundarhlé vegna fundahalda þingflokksformanna og ég hygg að hv. þingmenn viti nákvæmlega um hvað þeir fundir snúast.