Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég hef ekki verið hér eins lengi og sumir aðrir en ég hef þó verið varaþingmaður frá, ef ég man rétt, 2017 og tvisvar í það minnsta tekið þátt í atburðarás þar sem verið er að semja, bæði fyrir jól og tekið þátt í lokametrum á vori. Auðvitað hef ég líka fylgst með, bara eins og aðrir áhugamenn um samfélagsmál, í gegnum fjölmiðla í gegnum tíðina hvernig slíku vindur fram þó að það gefi ekki eins glögga sýn og að vera hér innan húss. En hér er þó verið að brjóta blað. Hér er verið að skrifa söguna upp á nýtt. Ég þykist þess fullviss að þetta er ekki eins og frú forseti ætlaði að skrifa söguna. Það er ég viss um. (Forseti hringir.) Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að forsetavaldinu, með formönnum þingflokkanna og þingflokksformönnunum, takist ekki að tala sig niður á einhverja skynsamlega niðurstöðu.