Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur og Ólafs Adolfssonar um að semja um það sem er í gangi hér. Það sem er í gangi er ekki boðlegt, hvorki fyrir þingheim né alþjóð. Svo langar mig líka til að fá mögulega upplýsingar frá hæstv. forseta. Hæstv. forseti, fyrir þá sem eru að horfa á í sjónvarpinu, er forseti alls þingsins. Nú er hér fundur á sunnudegi. Samkvæmt minni bestu vitneskju var ekkert rætt við þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar um að halda þennan í raun fordæmalausa fund á sunnudegi. Hvað veldur því? Telur forseti þetta vera vænlegt til árangurs, varðandi það að ná sátt um það sem fer fram hér á þinginu, að ræða ekki við stjórnarminnihlutann þar sem forseti er forseti alls þingsins?