Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Það er mjög sérstakt að standa hér í ræðupúlti Alþingis á sunnudegi. Eftir því sem mér best skilst og hefur ábyggilega komið fram í ræðum hér, ég hef ekki náð að hlusta á þær allar, þá var kallað saman þing á sunnudegi 1914 í upphafi heimsstyrjaldar og síðan 2015 af því að það varð að kalla saman þing til þess að klára ákveðin mál fyrir opnun markaða. Allt var þetta gert í góðu samráði og samstöðu þingsins. Því er ekki fyrir að fara hér. Þetta sýnir bara og segir, það að við stöndum hér á þessum fundi á sunnudegi með þau fordæmi sem við höfum fyrir okkur um hvenær þing hefur áður komið saman á sunnudegi, að hæstv. ríkisstjórn er komin með sín mál í algert öngstræti. Ég held að það sé eitthvað sem hæstv. forseti þarf virkilega að huga að í samræðum sínum við stjórnarliða.