Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:21]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Það er leiðinlegt hvernig komið er fyrir þessum þinglokum. Ég er þó bjartsýnismanneskja að upplagi og trúi því að hægt sé að greiða úr flóknum hnútum þótt allt of seint sé stundum gripið í taumana. Það hefur auðvitað verið þannig háttalag á þingstörfunum undanfarin misseri að viljinn til samtals og svona eðlilegs þinghalds, bæði í nefndum sem og á dagskránni, til að mynda varðandi það að hér hafa þingmannamál ekki komist á dagskrá, neitað hefur verið um gestakomur o.s.frv., gerir ríkisstjórninni erfitt fyrir að klára þingið, enda er staðan bara þannig á fjölda mála að það er óraunhæft. Í þá stöðu þarf forseti að horfast í augu við með okkur, enda er forseti alls þingsins með það stóra verkefni að reyna að ljúka hér þingstörfum með sómasamlegum hætti. Það hefur tekist í gegnum tíðina, misjafnlega vel. Oft hef ég setið hinum megin við borðið og verið alls ósátt við hvað forseti hefur gefið mikið eftir við stjórnarandstöðuna, en það er verkefni hæstv. forseta að mæta öllu þinginu með sómasamlegum hætti og klára þetta þing einhvern tímann.