156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:22]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti heyrir og líkar vel að heyra að hv. þingmenn séu á þeim buxum að hér þurfi að komast að samkomulagi og ljúka þingstörfum á 156. löggjafarþingi með sómasamlegum hætti og að sjálfsögðu er það verkefni allra þingflokka og hv. þingmanna allra. Ég ítreka það sem ég sagði áðan um þau samtöl og þau fundahöld sem hafa verið í gangi í dag og í gær til að leiða deilumál til lykta. Forseti stendur frammi fyrir því að hér hefur staðið yfir efnismikil og löng umræða í 40 og eitthvað klukkustundir, held ég, um það þingmál sem enn er á dagskrá. Það hefur vissulega áhrif á stöðu samtalsins um þinglokin. En sú sem hér stendur er að sjálfsögðu öll af vilja gerð til að leiða málið í jörð, eins og stundum er sagt, og að sjálfsögðu er verið að vinna að því þó að þau samtöl fari ekki fram hér í þingsal.