156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:24]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég fagna því sem fram kom hér í máli forseta að einhvers staðar í einhverjum herbergjum sé eitthvert samtal í gangi varðandi það verkefni sem ekki verður umflúið sem er að finna einhverja heppilega lendingu á þessari stöðu sem við finnum okkur í, í kjölfarið á þessari umræðu sem nú heldur áfram um bókun 35. Það er dálítið ankannalegt, frú forseti, að á dagskrá sé þetta mál, sem er mikið hjartans mál okkar Miðflokksmanna og lá svo sem fyrir að Miðflokkurinn yrði duglegur að tjá sig í því þó að við sæjum ekki fram á að það kæmi fram til efnislegrar umræðu nokkrum dögum fyrir áætluð þinglok eftir að hafa verið í einhvers konar ísskáp hæstv. ríkisstjórnar í u.þ.b. tvo mánuði. En það er nú þannig samt.

Í þessu máli, eins og við höfum margsinnis rakið og veldur okkur miklum áhyggjum, er til umfjöllunar mál sem er með þeim hætti að sett verði afturvirk forgangsregla í íslenskan rétt sem felur í kjarna sínum í sér að allar þær EES-gerðir sem innleiddar eru hér á landi njóti forgangs umfram íslensk lög. Forgangsreglan sem hér á að setja í lög er tímalaus í þeim skilningi að hún gildir bæði um allar þær hundruð gerða sem við höfum innleitt í íslenskan rétt síðustu 32 árin og gildir líka um allar þær gerðir sem við innleiðum í framtíðinni. Þetta hefur, eins og frú forseta er vel kunnugt um, valdið okkur Miðflokksmönnum miklum áhyggjum og teljum að gangi jafnvel í berhögg við 2. gr. stjórnarskrárinnar. Ég skal hins vegar alveg viðurkenna það í heildarumræðunni um þetta að ég sá ekki fyrir mér að þetta mál sem brennur á okkur Miðflokksmönnum yrði það mál sem hæstv. ríkisstjórn myndi nota til að, ég leyfi mér að segja, skýla sér á bak við, ég ætla að leyfa mér að nota það orð. Ég held að a.m.k. framan af, frú forseti, höfum við Miðflokksmenn verið að ræða þetta á þeim nótum sem ég var að fara yfir núna, áhyggjur okkar vegna þess hvernig stendur til að innleiða bókun 35 sem forgangsreglu og við vorum uppteknir af efnisatriðum málsins og höfðum raunverulegar áhyggjur. En nú er mig farið að gruna að þetta hafi komið sér ákaflega vel fyrir ríkisstjórnina því á meðan við vorum að ræða þessi efnisatriði, afturvirkni og forgang umfram aðrar reglur, hafi ríkisstjórnin einmitt þurft á þessum tíma að halda til að leiða til lykta hvaða mál hún hygðist leggja mesta áherslu á. Við Miðflokksmenn höfum því kannski bara, frú forseti, leyfi ég mér að segja, borið svolítið hæstv. ríkisstjórn á herðum okkar síðustu daga. Ef svo er þá er það líka bara allt í lagi. Við veigrum okkur ekkert við því.

En það er ekki eins og við séum einir hins vegar sem höfum áhyggjur af þessu. Ég veit að frú forseti veit vel af því og þekkir þá umræðu sem á sér stað meðal fræðimanna. Margir lögfræðingar, jafnvel embættismenn, halda því fram að í þessari reglu felist ekkert nýtt. Þeir eru margir. Þeir eru líka mjög margir, mjög vel menntaðir, sérmenntaðir jafnvel á sviði Evrópuréttar, sem halda hinu gagnstæða fram. Hér sé á ferðinni innleiðing sem, og nú ætla ég að orða þetta mildilega, frú forseti, í það minnsta ögri stjórnarskránni. Þetta eru allt saman atriði sem valda okkur Miðflokksmönnum miklum áhyggjum.

En ég er líka á því, eins og fram hefur komið í máli sumra hv. þingmanna meiri hlutans og í máli frú forseta, að vissulega eru hér gríðarlega stór og mikilvæg mál sem bíða þess að komast á dagskrá og látið í veðri vaka að það séu efnislegar áhyggjur okkar Miðflokksmanna sem trufli það að þau komist á dagskrá. Svo er ekki. Eins og hefur komið fram í ræðum hér undir liðnum fundarstjórn forseta eru að teiknast hér upp átök um allt aðra hluti heldur en bara bókun 35.

Frú forseti. Ég óska eftir að vera settur aftur á mælendaskrá.