156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:29]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég ítreka spurningu mína um hvort eitthvað hafi spurst til hæstv. fjármálaráðherra sem hlýtur að vera reiðubúinn að koma hér og ræða það neyðarástand sem kallar á þennan fund hér á sunnudegi. Steingrímur J. Sigfússon, forveri núverandi hæstv. forseta, kvartaði oft yfir of miklum umræðum og of löngum hér á Alþingi sem þótti nú dálítið merkilegt í ljósi þess að fáir höfðu rætt málin eins mikið og hann gerði í sinni tíð sem óbreyttur þingmaður. Stundum varð Steingrímur J. Sigfússon mjög ergilegur yfir þessu öllu. En það hvarflaði aldrei að honum að fara í aðgerð eins og þá sem við höfum upplifað hér í dag. Þess vegna hljótum við að draga þá ályktun að á einn eða annan hátt sé hér einhvers konar neyðarástand sem við hljótum að geta gert kröfu til þess að hæstv. ráðherra komi og ræði.