Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Þessi fundur snýst ekki um bókun 35, hann snýst um allt annað. Þjóðfundurinn 1851 var afdrifaríkur atburður í sögu sjálfstæðisbaráttu okkar. Þar var til umræðu frumvarp þeirra sem með valdið fóru, dönsku stjórnarinnar, sem varðaði stjórnskipan Íslands. Frumvarpið hafði verið til umræðu í stjórnlaganefnd. Þjóðkjörnu fulltrúarnir voru andvígir frumvarpinu frá valdhöfum. Réttindi minni hluta voru með því fótum troðin. Það er frægt hvernig valdi var misbeitt þegar valdhafi sleit fundi í því tilfelli. Það var þá sem hin fleygu orð flugu, virðulegur forseti: Vér mótmælum allir.
Þannig er það, skilað hér og undirritað til virðulegs forseta í nafni allra þingmanna minni hluta á Alþingi Íslendinga. Við erum að mótmæla vinnubrögðunum með þessari stöðu okkar hér, þeim vinnubrögðum sem er verið að bjóða okkur upp á, ekki bara í dag þar sem öll hefð er brotin og boðað til sunnudagsfundar af engu tilefni, (Forseti hringir.) þar sem gengið er algerlega fram hjá samtali við minni hlutann, þar sem menn voru að undirbúa sig undir allt önnur störf í dag, (Forseti hringir.) tengd þingstörfunum, í þeim miklu önnum sem á okkur eru alla daga hér.