156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:34]
Horfa

Snorri Másson (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég vildi benda á það í þessari umræðu þar sem margir hafa leyft sér að gera lítið úr þeirri umræðu sem hefur farið fram um bókun 35, að í sjálfum vörnum Íslands í málinu sem var haldið fram nokkuð sköruglega fyrir nokkrum árum, ekki lengra en kannski fyrir þremur, fjórum árum síðan, það eru dagsett bréf þar sem sjónarmiðum og málstað Íslands er haldið uppi mjög röggsamlega, er það útskýrt að bókun 35 er stjórnarskrármál. Þar er það útskýrt að okkar innleiðingu á þessu verði, frekar en að innleiða þetta með svona ákvæði sem núna er stefnt að, að gera með stjórnarskrárbreytingu. Þetta er í raun og veru stjórnarskrármál. Í sögulegu samhengi Alþingis er vert að benda á að það eru einmitt stjórnarskrármál sem hafa alveg frá 19. öld og í allri nútímasögu þingsins fengið hvað mesta athygli hér í þinginu, kannski einkum framan af, en þau eru stór þáttur í störfum Alþingis. Það er vinna með stjórnarskrána. (Forseti hringir.) Það er vinna við að gæta að stjórnarskránni eða þá að beita henni eftir atvikum, (Forseti hringir.) Þannig að það að það fari fram ítarleg umræða um slík mál er fullkomlega eðlilegt og það er nauðsynlegt.