156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:35]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Mig langaði til að athuga hvort ég gæti fengið svar við spurningu um það hvort það sé yfirleitt venjan að ráðherrar sitji yfir 2. umræðu hér í þingsal eins og hér er kallað eftir, svo við séum ekkert að blekkja okkur með það. Ef það er venjan þá er kannski eðlilegt að kalla eftir ráðherranum, ef það er ekki venjan þá getum við kannski bara lokað því. Hér hefur setið lungann úr þessari umræðu hv. þm. Pawel Bartoszek sem er framsögumaður málsins og formaður hv. utanríkismálanefndar. Það er kannski eðlilegt að kalla eftir honum og fá hann til að vera hér ef það er eitthvað sem getur aðstoðað við lausn þessa máls.