Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég vil eiginlega ítreka og forma enn betur það sem ég kom inn á hérna áðan, virðulegur forseti, hvort þess sé að vænta að einhver úr forystuliði meiri hlutans útskýri það fyrir þingheimi og almenningi sem er að velta þessu fyrir sér af hverju öll önnur mál urðu að víkja af dagskrá Alþingis og það varð að halda þennan fund á sunnudegi með því eina máli. Ég bara finn það að fólk skilur þetta ekki og það vill fá útskýringar á því hvað er svona aðkallandi við þennan samning og þennan viðauka að það verði að hafa þennan háttinn á. Við höfum komist af án þessa í rúm 30 ár. Hvað er það nákvæmlega í dag? Er það eitthvað sem við vitum ekki um, eitthvað úti í Evrópu eða eitthvað sem er búið að lofa? Hvað er það? Ég óska eftir því að einhver úr stjórnarliðinu — ég sé að ráðherrar hafa ekki haft tíma til að vera hérna lengi — en alla vega einhver úr forystusveit stjórnarmeirihlutans svari því hvað er svona aðkallandi.