Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Hér kom hv. þm. Grímur Grímsson upp og spurði hvort það væri venjan að ráðherrar tækju þátt í 2. umræðu, hvort það væri venjan að ætlast væri til þess að ráðherrar fylgdu málum sínum eftir þegar þau væru komin inn í þingið. Hæstv. forseti svaraði því til að það væri ekki venjan að ráðherrar tækju þátt í 2. umræðu. Á ég að nefna annan hlut sem er ekki venjan á Alþingi? Að boðað sé til þingfundar á sunnudegi og það í illindum og að því er virðist eingöngu til að sprengja þingstörfin í loft upp hér eftir að áætlaðri starfsáætlun Alþingis er lokið. Það er ekki venjan, frú forseti. Hæstv. forseti hefur skráð sig í sögubækurnar með því að innleiða það sem kann að verða ný venja á þingi.