156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:41]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Við stöndum hér á sunnudegi í þriðja skipti í þingsögunni og umræðan um bókun 35 er þá á pari við upphaf heimsstyrjaldar. En það er svolítið merkilegt og gaman að rýna í tölurnar af því að hér er talað um hið mikla málþóf. Málþófið svokallaða er komið í 40 og eitthvað klukkustundir en það er nú bara þannig að í fjárlögunum 2016 var talað í 77 klukkustundir og 14 mínútur. Um útlendinga á 153. þingi var talað í 84 klukkustundir og 59 mínútur og um ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta á 138. þingi var talað í 101 klukkustund og 38 mínútur. Þá var ekki boðað til sunnudagsfundar. Í gær voru umræður um bókun 35 í 13. sæti yfir klukkustundir í umræðu um mál. Um hin 12 málin var ekki boðað til sunnudagsfundar.