156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:42]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Venjur. Hv. þm. Grímur Grímsson spurði út í venjur áðan. Ég fæ ekki betur séð en að venjum fari hratt fækkandi hér. Nú er hv. þm. Grímur Grímsson yfirleitt mjög málefnalegur en ég hygg að þetta hafi verið, hv. þingmaður, má ég kalla þetta feilskot? Það eru allar venjur að fjúka út um gluggann hérna. Ég hyggst þó spyrja út í eina venju enn, frú forseti, af því að ég veit að forseti þekkir mjög vel söguna í þessu: Er það venjan að flokkar taki kosningabaráttu með eitt tiltekið mál sem eitt af stærstu málunum í andstöðu og noti svo slíkt hið sama mál nokkrum vikum seinna sem lykilmál í að læsa þinginu? Gera þar af leiðandi það mál að aðalbaráttumáli sínu á meðan líklega sá kjósendahópur sem viðkomandi flokkur náði ágætlega til bíður núna eftir réttarbótum í málefnum fatlaðs fólks. Frú forseti, er þetta venja?