Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Hér er allt í einum stórum rembihnút. Ég held að það hafi verið algjörlega fyrirséð hvað myndi gerast þegar það er boðað til neyðarfundar á sunnudegi og við ræðum í raun nánast ekkert málið sem er eina málið á dagskrá. Ég veit að forseti hefur reynt að hóa saman þingflokksformönnum og mögulega formönnum flokkanna en það er algerlega kominn tími á það að forseti sýni enn frekar styrk sinn í því að það verði samið hér í stað þess að þessi skrípaleikur haldi áfram. Það þyrfti bara að vera svona eins og í páfakjöri, menn eru bara inni í herbergi þangað til að það kemur hvítur reykur og við erum komin með einhverja niðurstöðu. Þetta er ekki boðlegt fyrir okkur sem störfum hér og íslenska þjóð.
(Forseti (ÞSv): Forseti skal svo sannarlega taka þessa tillögu þingmannsins til greina.)