Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Hér eru tveir þingmenn ríkisstjórnarflokkanna í þingsal fyrir utan virðulegan forseta. Ég sakna þingmanna stjórnarflokkanna í þessari umræðu. Þeir hafa aðeins tekið þátt í henni þar sem þeir voru að væna okkur um að nenna ekki að vinna, töluðu til okkar af þekktu yfirlæti en virðast núna í dag ekki lengur treysta sér til að verja þessi vinnubrögð, virðast vera rökþrota. Þeir láta það alla vega alveg hjá liggja að verja þetta. Minni hluti atvinnuveganefndar ætlaði að vinna í dag við nefndarálit varðandi gjaldtökumálin í sjávarútvegi, ætluðum að undirbúa líka fund á morgun og á miðvikudag með þeim gestum sem við fengum ekki að boða á fund atvinnuveganefndar. Ég spyr virðulegan forseta hvort það standi til að setja veiðileyfagjaldið á dagskrá þingsins á morgun. Ég óska eftir því að það verði alls ekki gert, að okkur verði gefinn tími til að vinna okkar nefndarálit sem þessi dagur átti að fara í en hann er farinn í súginn.