Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Hér hefur verið ótt og títt auðvitað nefnt að til þingfundar hafi verið boðað á sunnudegi. Ég verð þó jafnvel að gera athugasemd við þetta orðalag vegna þess að til þessa þingfundar var í sjálfu sér ekki boðað. Forseti þingsins sendi þingflokksformönnum vissulega tölvupóst, samdægurs, eftir miðnætti í nótt, með tilkynningu um að það yrði þingfundur í dag. Ekkert hefur þingið gert til að upplýsa almenna þingmenn um þetta, ekki sent SMS-skeyti eins og svo títt er þegar verið er að dreifa hér skjölum eða tilkynna um atkvæðagreiðslur eða annað slíkt. Almennir hv. þingmenn hér eru hafðir að engu á þessu þingi, að engu, og til að bíta höfuðið af skömminni hafa komið hér hv. þingmenn stjórnarflokkanna með uppnefningar í garð þingmanna stjórnarandstöðunnar og almennan skæting.
Virðulegur forseti. Bragurinn á þessu þingi er nákvæmlega enginn og á því ber ábyrgð forseti Alþingis.