Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Mig langaði að koma hér upp í ræðustólinn og velta þeirri spurningu upp hvort það sé mat virðulegs forseta og hv. stjórnarflokka að þessi þingfundur hafi skilað tilætluðum árangri, hvort hann hafi verið árangursríkur í því að leysa úr því máli sem er hér til umræðu, bókun 35, hvort það hafi liðkað fyrir þingfundasamningum og hvort hann hafi skilað þeim árangri sem til var ætlast þegar lagt var mat á það að það væri nauðsynlegt að brjóta þetta blað með því að boða til þingfundar á sunnudegi. Höfum við náð einhverjum árangri í dag?