Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Þegar líða fer að þinglokum skilst mér sem nýjum þingmanni að þá setjist aðilar niður og byrji að semja. En það er samt alveg á hreinu, a.m.k. fyrir Sjálfstæðisflokkinn, að Sjálfstæðisflokkurinn mun spyrna við fótum þegar kemur að því að hleypa málum í gegn, eins og t.d. því að lækka lífeyrissjóðsgreiðslur verkafólks um 5–7,5%. Það verður ekki liðið og ekki samþykkt af Sjálfstæðisflokknum. Það er fullt af málum hér sem munu hafa stórkostleg áhrif á byggðir landsins, á ellilífeyrisþega og skattgreiðendur og á ríkissjóð. Og að halda að það sé eitthvað sem verði tekið sem léttvægu af stjórnarandstöðunni og Sjálfstæðisflokknum — við munum spyrna við fótum og vera hér eins lengi og þarf. Það besta sem kæmi fyrir íslenska þjóð væri að ekkert af þessum dellumálum færu í gegn.