Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Mig langar til að byrja kannski á því að hrósa hæstv. forseta fyrir að taka vel í beiðni mína um að færa velferðarfundinn sem átti að vera hálfníu í fyrramálið, einmitt á þeim tíma sem við áttum að vera í loftinu á milli Akureyrar og Reykjavíkur, a.m.k. tveir nefndarþingmenn. Ég bara þakka kærlega fyrir það. Hins vegar varðandi stöðuna hér í þinginu þá er mér eiginlega fyrirmunað að skilja ástandið og mér finnst það okkur til háborinnar skammar hvernig staðan er hérna í dag. Við erum að verja sunnudegi til að vera viðstödd þingfund. Jú, jú, gott og vel. En hefði ekki verið betri bragur á því að taka þá fyrir mál sem eru mikilvæg fyrir þjóðfélagið okkar, sem skipta okkur öll miklu máli og sem er samstaða um, frekar en að ræða bókun 35, eins mikilvægt og gott mál sem það er? Það var hins vegar búið að flagga því og við vissum það öll að það yrði mikil umræða í þessu máli. Það var vitað fyrir fram. Ég held að allir í þinghúsinu hafi áttað sig á því. Þannig að mig langar að leggja það til við hæstv. forseta að hún endurskoði kannski aðeins forgangsröðunina og hleypi mikilvægum þjóðþrifamálum á dagskrá hér til umræðu í þinginu í dag.