Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég vísa til ræðna hv. þingmanna Jens Garðars Helgasonar og Ingibjargar Isaksen sem töluðu hér rétt á undan mér og velti því fyrir mér hvort hér liggi ekki einmitt hundurinn grafinn, þ.e. ég heyrði ekki annað á mæli hv. þm. Jens Garðars Helgasonar en að hér yrði tekið að fullu á móti ýmsum öðrum málum sem eru hér á dagskrá og á sama tíma er kallað eftir því að þessi mál komi á dagskrá. En mér sýnist það vera þannig að ríkisstjórnarflokkarnir geti ekki komið sér saman um hvaða mál eigi að afgreiða hérna út af þessu þingi. Það er bara þannig. Þess vegna er tækifærið notað hér, þetta mál sem kallað er bókun 35, þess vegna er það látið hanga hér og látið líta út fyrir að það sé að hamla einhverjum framgangi og umræðu annarra mála. Það er auðvitað ekki þannig. Það er bara þannig að ríkisstjórnarflokkarnir eru algerlega verkstola þegar kemur að því að afgreiða þeirra eigin mál hingað inn í þingsal.