Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég vísa í það sem ég kom aðeins inn á áðan undir fundarstjórn forseta, gagnvart því að vera svolítið lausnamiðaður í þessari stöðu og velti því aðeins fyrir mér, ef þessum fundi verður hætt fljótlega, ég býst ekki við öðru en að svo verði, að það verði síðan sett önnur mál á dagskrá morgundagsins sem við getum gengið aðeins á, sem eru mikilvægari að mínu mati og við getum komið okkur saman um að setja á dagskrá morgundagsins áður en það kemur hátíðisdagur, 17. júní. Á meðan umræður sem hæstv. forseti vísar til að séu í gangi standa yfir þá gætum við gengið aðeins á önnur mál sem eru komin út úr nefndum. Það eru auðvitað dæmi um mál sem eru löngu komin út úr nefndum án þess að hafa komist á dagskrá eins og þetta mál var lengi að komast á dagskrá, þetta frumvarp um bókun 35.
Ég biðla því til forseta að hugsa hvort það sé ekki hægt að bíða með þessa umræðu, ljúka þessum fundi hér í dag, sem ég tel engan árangur vera að nást út úr, og reyna svo að klára einhver önnur mál á morgun.