Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Mér heyrist sú fundarstjórn að ákveða að hafa fund hér á sunnudegi sé farin að skapa önnur vandamál við það að koma öðrum málum áfram. Eins og hefur komið ítrekað fram hér eru það ekki einu störf þingmanna að taka til máls hér í þessum ræðustól, heldur fer kannski mesta vinnan í að vinna málin, setja sig inn í þau, fjalla um þau í nefndum, taka á móti gestum, leggja mat á þau og skila þeim svo hingað inn með nefndarálitum. Það er fjöldi þingmanna sem ætlaði einmitt að nýta þennan dag í að búa til nefndarálit. En nú heyrist mér, virðulegur forseti, að við þurfum að fara að velja öðruvísi á dagskrá næsta þingfundar þar sem nefndarálitin verða bara ekki tilbúin út af þessari ráðstöfun hér í dag.