Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Mig langaði að taka undir orð hv. þm. Vilhjálms Árnasonar sem beindi þeirri spurningu til hæstv. forseta hvort þessi fundur í dag, þessi bráðnauðsynlegi, nánast fordæmalausi fundur, hefði einhverju skilað. Hér hefur verið farið yfir það að það liggi brýn verkefni fyrir þingmönnum, m.a. að vinna álit, minnihlutaálit í stórum málum. Svo skilst mér að það hafi nokkuð skort á gestakomur í ýmsum nefndum þingsins. Það væri hægt að nýta daginn í það ef það liggur svona mikið við að við komum hér saman á sunnudegi. Annars ættum við kannski að hætta að hafa svona miklar áhyggjur af framgangi þessara stóru mála hæstv. ríkisstjórnar. Þetta er kannski óþarfameðvirkni í okkur því eins og hv. þm. Jens Garðar Helgason kom inn á áðan er auðvitað öllum fyrir bestu að við eyðum bara sem mestum tíma hér saman og ræðum málin í þaula.