156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:57]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég held að það sé öllum ljóst hér í salnum og þeim sem eru að horfa á að hvað varðar það eina mál sem er á dagskrá, bókun 35, þá mun Miðflokkurinn ekki gefast upp í því máli. Hann mun halda áfram þannig að það verður þá ekkert annað en þau að tala um það sem er þeirra hjartans mál og svo við að ræða fundarstjórn forseta. Ég hvet hæstv. forseta til að skoða það og komast að einhverri niðurstöðu með málið því að fundurinn sem er í gangi núna — það kemur ekkert út úr honum. Ég held að hæstv. forseti viti það. Því fyrr því betra sem við klippum á þennan streng í stað þess að málin séu í þessum farvegi sem þau eru. Ég vil líka minna á að það er algjörlega á ábyrgð meiri hlutans sem fer með dagskrárvaldið að stýra þessu. Við viljum öll að það komi eitthvað út úr þingstörfunum og þetta er ekki, held ég, leiðin.