Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Það er rétt sem hv. þm. Jón Pétur Zimsen segir. Miðflokkurinn á margt eftir órætt þegar kemur að bókun 35. Við höfum alveg vera heiðarleg með það og hæstv. forsætisráðherra hefur verið heiðarleg með það að það þurfi tíma í þetta mál. Ég legg til enn eina ferðina að þið takið þetta mál af dagskrá og setjið á dagskrá mál sem þið viljið koma að því að þetta mál á eftir að fá mikla umræðu. Þið getið þá haft það á dagskrá á eðlilegum þingfundatíma vegna þess að hér í dag eru flestir í minni hlutanum sem þurfa að vinna nefndarálit og vinna að alls konar málum því að í fyrramálið eru nefndarfundir og svo er þingfundur. Ef ekki, þá spyr ég forseta: Hvenær leggur hann til að minni hlutinn geti unnið sína vinnu þegar það er þingfundur frá morgni og fram á nótt og ef það er ekki þingfundur eru nefndarfundir? Er þetta kannski leið til þess að við getum ekki unnið okkar vinnu, okkar nefndarálit? Því að starfsfólk þingsins er ekki að hjálpa okkur, það er bara að hjálpa meiri hlutanum í því eins og liggur fyrir.