Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég vil bara koma hingað aftur upp og biðla til forseta Alþingis um að kalla eftir því hvort stuðningur sé við það hjá þingflokksformönnum og formönnum flokkanna að verja meiri tíma í samtöl og sleppa frekar fundum eins og þessum þar sem var algerlega augljóst að dagurinn færi nákvæmlega eins og hann er að fara. Það mátti öllum vera ljóst. Ég hef nú verið hér í þessu húsi í mörgum mismunandi hlutverkum í 13 ár og þrátt fyrir að forseti sé auðvitað forseti þingsins og þingflokksformenn beri ábyrgð á þeim störfum þá vitum við líka alveg hvernig pólitíski veruleikinn er. Við erum komin inn í miðjan júní eftir að þingfrestun átti að hafa átt sér stað og það er búið að taka starfsáætlun úr sambandi. Það þýðir að við erum komin á þann stað að formenn stjórnarflokkanna bera einfaldlega ríkari ábyrgð á því að finna einhvern veginn út úr því með þeim sem eru hér í ábyrgðarhlutverki í þinginu hvernig þessu þingi á að ljúka. Og ég heyri ekki annað en að við séum órafjarri því. Þess vegna vil ég biðla til forseta (Forseti hringir.) að það verði endurskoðað hvernig tímanum er varið eins og með því að kalla til þingfundar á þessum degi.