156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[18:06]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég spyr enn um hæstv. fjármálaráðherra sem mun vera að leysa hæstv. utanríkisráðherra af í því hlutverki. Það er að sjálfsögðu alvanalegt að ráðherrar taki ekki þátt í 2. umræðu um mál þótt til séu mörg dæmi um hið gagnstæða og oft og tíðum hafi verið kallað eftir þátttöku ráðherra þegar sérstaklega stendur á og margir fyrrverandi ráðherrar hafa reynt að verða við því. En nú stendur alveg sérstaklega á því að hér er boðað til einhvers konar neyðarfundar á sunnudegi og enn hefur ekki tekist að útskýra fyrir þinginu hvað valdi, hver hin mikla neyð er sem leiðir til þessarar ótrúlegu uppákomu hér.