156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[18:08]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um mikilvægi þess að halda þennan fund hér á sunnudegi, það er ákvörðun forseta að gera slíkt og fá fordæmi í sögunni, að menn nýti það til að ræða bókun 35, sem er Miðflokknum mjög mikilvæg og ber alveg að virða það. En ég spyr, herra forseti: Er það ekki illa farið með þetta að taka sunnudag undir þetta því að nóg er vinnan við að vinna að álitum og ýmsu sem minni hlutinn þarf að vinna í á sunnudögum? Ég hef áhyggjur af því að þetta fordæmi muni skemma fyrir framtíðarþingstörfum.