Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Hér kom hæstv. dómsmálaráðherra í pontu í upphafi þingfundar í dag og var að segja þjóðinni, á þeim tíma sem mest er horft á þegar þingið er að hefjast, að það væri nauðsynlegt að funda á sunnudögum. Hún virðist nú hafa verið að blekkja þjóðina um að hún ætlaði að vinna hér alla vega á þessum sunnudegi vegna þess að við höfum ekki séð hana síðan, ekki frekar en aðra ráðherra, og nú er svo komið að það er enginn þingmaður stjórnarflokkanna hér í þingsalnum heldur. Þetta er sami ráðherrann, virðulegur forseti, og reyndi að villa um fyrir þingi og þjóð í eldhúsdagsumræðum þegar hún gaf í skyn að það væri hafin sakamálarannsókn á fyrrverandi fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni. Hún veit auðvitað betur. Hún er löglærð. Hún er fyrrverandi saksóknari.
Virðulegur forseti. Ráðherra sem segir ósatt í þinginu þarf að fara að huga að stöðu sinni. Það er tilefni til að fá viðbrögð hjá forseta og forsætisnefnd um það þegar menn viðhafa slíkan málflutning vitandi vits að þeir fara með rangt mál.