156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[18:11]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Stjórnin er með allt í skrúfunni. Hún er verkstola. Flestir kannast við það þegar verið er að greiða úr gömlum jólatrésseríum rétt fyrir jólin að það getur verið þrautinni þyngra. Svipað er ástatt hér á þinginu fyrir utan að það er ekki bara að jólatrésserían sé öll í harðahnút og flækt heldur er slökknað á flestum ljósum. Nú ríður á að forseti stígi inn í þetta ástand, líti til beggja átta og skrúfi niður væntingar stjórnarliða um afgreiðslu stórra mála hér á þinginu. Það verður að horfa til þess að stjórnin er einungis búin að starfa í fimm mánuði, hefur einungis starfað í fimm mánuði, herra forseti, og væntingar stjórnarliða um að koma öllum þessum fjölda stórra mála hér í gegn á þessum skamma tíma eru stórlega ofmetnar.