Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Við erum hérna enn þá. Sú sem hér stendur spurði að því fyrir stuttu síðan hvort þess væri að vænta að einhver úr stjórnarliðinu myndi skýra það, virðulegur forseti, fyrir okkur hér í þinginu og almenningi sem er að velta þessu fyrir sér út af hverju þetta eina mál er á dagskrá. Hvað er það sem er svona mikilvægt við það? Og ég spyr og vildi helst fá svör við því: Er þess að vænta síðar í dag eða kvöld að hér komi einhver úr stjórnarliðinu og útskýri það fyrir okkur? Hvað er það sem liggur svona á núna að klára þetta eina mál? Svo eru öll hin málin eftir sem við viljum gefa okkur tíma í að ræða gaumgæfilega og vinna vel. Einu stjórnarliðarnir sem alla vega ég hef tekið eftir hér í dag komu heldur snautlega fram og voru að nota tækifærið hér í ræðustóli til að uppnefna stjórnarandstöðuna, kalla þingmenn hefðarketti og þar fram eftir götunum. (Forseti hringir.) Þetta er ekki til mikils sóma. Ég vil að því verði svarað: Af hverju liggur svona á þessu máli en ekki neinum öðrum?