Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Það eru mörg mál sem liggja fyrir þessu þingi. Við höfum fengið mörg til 1. umræðu og einhver eru komin út úr nefndum. Ég hefði kosið að virðulegur forseti hefði hagað málum þannig að við hefðum getað tekið mikið af þessum málum til umræðu á undan því máli sem er hér núna eða að bókun 35 hefði bara verið rædd þegar málið kom út úr nefnd. Það er margt sem ég vil geta sagt um þessi mál. Ég vil ekki lenda í því að það verði fullt af málum sem ég hefði viljað tjá mig um hér og það verði svo búið að semja um þinglok og þau verði tekin með hraði hér í gegn af því að ég hef áhyggjur af mörgum af þessum málum. Það er ýmislegt hægt að leggja til máls í því og vonandi að það hafi áhrif til þess að málin verði betri. Því vildi ég gera athugasemd við þessa fundarstjórn, virðulegur forseti, að tímanum hér hafi verið eytt í þras í staðinn fyrir málefnalega umræðu um þau mál sem er nauðsynlegt að ræða.