Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Þessi umræða er auðvitað löngu hætt að snúast um bókun 35. Hún snýst orðið um þingsköp og það hvernig þetta form okkar hér á að leiða til einhverrar niðurstöðu og lykta með fjöldann allan af málum. En mér fannst mjög áhugavert, herra forseti, hér áðan, því að ég var ekki búinn að setja þetta í það samhengi þegar við sátum undir ámæli fyrir eitthvert málþóf, þegar kom þessi tafla sem hv. þm. Jens Garðar Helgason fór með sem setur málið og hugtakið í allt annað samhengi. Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta tók 101 klukkustund. Útlendingar 84,59. Mér fannst bara tilvalið, herra forseti, að nefna þetta í þessu stóra samhengi.